Allt er þegar þrennt er ;)

21.01.2008 13:47:27 / Bára Dögg

GETTUR HVAÐ

NÝ FÆRSLA...

HAHA ÞETTA KOM YKKUR Á ÓVART..


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 12:24:54 / eva

hóhóhó...

Þið getið lesið um Interrail ferðina okkar betu á

 

www.beva.bloggar.is

 

Endilega verið dugleg að skoða hana, við förum út 8. sept þá byrjar fjörið á síðunni!!!!! 


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 19:21:53 / eva

Já... ójá

Versló var algjör snilld, segi ekki að hún hafi verið betri en í fyrra bara llt allt öðruvísi.... Stuðmenn voru æði spæði, og skemmti ég mér stórvel þar, og mér til mikillar furðu ´stakk Rabbi upp á því að fara heim, ekki ég að draga hann heim, hehe.... Svo var reynt að versla sem allra allra minnst, splæsti samt í smá bol, sokka og brækur handa rabba þar sem ég hafði samviskubit yfir því að hafa læst hann úti og að þeim sökum gat hann ekki náð sér í hrein föt þegar hann kom frá Borgó.......... (kenni samt honum um þetta þar sem ég náði aldrei í hann í síman)

En svo var sunnudagurinn stórskemmtilegur.... brekkusöngurinn var fín samt svo léilegur, ég fékk allavena candy floss, svo fórum við heim og trölluðum og svo í sjallann, þar var fínt þrátt fyrir að það hefðu mátt vera fleira þarna :S En eins og venjulega er alltaf gaman þar sem austfirðingarnir eru og þeir voru sko allir í Sjallanum´!!!!
Fékk að hitta Evu Laufey sem var ótrúlega skemmtilegt þrátt fyrir að hún hafi stoppað stutt í faðmi mér, samt alltaf gaman að sjá nöfnu mína :D:D:D
En kvöldið endaði í 10-11 með Sissó og Stínu í góðum gír.... En við lentum í töluverður ævintýrum þetta kvöld, þar má nefna meðal annars

1. löggað kom að spjalla við okkur þegar Sissó var í óðaönn að ná bjórkassa úr dekkinu sem ég hafði klesst á (og hann festist í dekkinu) síðan kemur kollurinn á Sissó allt í einu í ljós og það fyrsta sem hún sér er löggan, og hún tilkynnir þeim að hún hafi alveg getað þetta sjálf enda ekki úr sveitinni fyrir ekki neitt... hehe þetta var mjög fyndið og mikið had to be there moment. Meðan á þessu öllu stóð var ég að tala í síman og löggan benti mér á það þá drap ég á bílnum þá var ég að leggja óleglega, þá spurði sissó hvort þeir ætluðu ekki að kæra mig fyrir að vera í flegnum bol og þá kom vandræðaleg þögn (þar sem ég var ekki í flegnum bol)...... Þetta var ekkert annað en snilld.

2. það voru slagsmál á bílnum hennara sissóar og loftnetið beygjaðist og við upp á lögustöð að tala um yfirlögreglustjóran (sissó bleguð) að reyna að fá bílin sinn bættan, og já það var hlegið af okkur.... hehe...

3. 10-11 ferðin var líka gríða góð, Kristín að reyna að ná sér í kók og Sissó að reyna að borga með lírum!!!!

svo loksins loksins komum við heim klukkan 8:00 um morguninn, eftir snilldar kveld...

 

Já gaman að þessu

yfir og út


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 23:24:29 / eva

Held áfram á framavegi...

Já halló halló halló!!!!!!!!!!!!!

þá er að komið að því stærsta ferðamanna helgi Ársins!!!! Og Akureyri here I come.
Mér heyrist að margir taki stefnuna norður eins og venjulega, einhvernvegin enda alltaf flestir þar.
Nú er bara spurning hvort þessi helgi verði betri en sú síðasta. En hún einkenndist af stelpu partý í hámarki, rassaglenningum Helgu Jónu, krakka kampavíni í brekkusöngnum, skemmtilegum böllum í sjallanum og bara endalausu stuði!!! Og að ógleymdum Greifa pizzum niðrí bæ um miðja nótt!!!! Já þetta er LÍFIÐ!!!!!!! 8|8|8|

Já manni hlakkar nú bara þónokkuð til, síðan fer fólk fljótlega eftir þessa helgi að týnast hver í sína átt, hálf soglegt að maður muni ekki hitta suma eins oft og áður :S:S
En auðvitað erum við Beta að fara að leggja í "heimsreisuna" okkar sem er alltaf að verða raunversulegri, með hverjum degi styttist í þetta... já blönduð tilfinning óendanlega spennt samt svo hrædd.  En þetta verður ekki eitthvað sem maður upplifir oft svo um að gera að njóta þess :D

En þessu er lokið í kveld ætla að fara að leggja mig

 

Sjáumst á AK!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 20:08:12 / eva

Lífið mitt

Þetta er helst að frétta af mér þessa dagana.

  • Er búin að kaupa miða til Alicante, en þanngað ætlum við Beta að fljúga til að starta Interrailinu
  • Nú fyrst er maður að átta sig á að þetta sé að fara að ske
  • Maður er allur á fullu í vinnunni....
  • L.ung.A var mjög fínt
  • Nema seinasti Dj-inn sem skemmdi næstum helgina fyrir mér með því að spila sama lagið að mér fannst 2000000000 sinnum
  • Mig vantar nauðsynlkega vinnu næsta vetur....
  • Fótboltin gengur bara mjög vel bara búnar að tapa einum leik í deildinni :)
  • Fór ó hóp sturtu í öllum stelpunum í fótboltunum, í öllum fötunum, það var fyndið.
  • Er tognuð í kálfanum great
  • Ætla til Ak um Versló, allir að mæta og hafa gaman AF
  • Ég er léileg að blogga.....
  • Jé bæbæ

» 6 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 22:35:32 / eva

Bara SNILLD!!!

 

 

 

Hvað var þetta annað en SNILLDAR FERÐ!!!!!!!


» 11 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 14:39:55 / eva

heppinn..

Já heppin voru þið, ég er að vinna á Fásk og það er EKKERT að gera, svo ég náði að setja llar útskrifarmyndirnar inn ;) Svo mínu verki er lokið, skoðið og endilega commentið, því þetta tók mikinn tíma og mikla þolinmæð!!!!!

 

Svo fagnið verki mínu :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 14:34:33 / eva

Er þetta ekkert grín?

það er verið að endursýna heila spænska sápuóperu í dag akkurat þegar ég er veik... þvílík lukka :)

 

En það eru komnar inn myndir frá útskriftarballinu

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 13:20:01 / eva

jalla jalla....

Já loksins er maður að blogga. Eftir þessa snilldar útskriftarferð. :D:D:D Sem var fátt annað en skemmtileg ;)
Sett myndirnar inn við tækifræri þær eru bara svo ógeðslega margar :S
En annars er allt gott að frétta af manni þrátt fyrir að maður sé heima veikur úr vinnunni :S Bölvað vesen ......

En við stelpurnar í meistaraflokki unnum hamranna 7-2 núna á mánudaginn, sem var auðvitað ekkert annað en stór skemmtilegt :D:D:D:D:D
Svo var nottlega ball á Laugardaginn með Todmobial (vá hvað ég kann ekki að skrifa það :S)
En ég skemmti mér sko stórvel á ballinu, loksins þegar maður drullaði sér á dansgólfið :D En ég tók ekki myndir á þessu balli svo það þýðir ekkert að bögga mig á því ;) En ég ætla að fara að fá mér kók og nammi ;)

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 19:37:00 / eva

Tyrkland

ja madur er ı tyrklandı!!!!!! Jalla jalla tad er klıkkad!!!! Bara adeıns ad lata ykkur ofunda okkur. Erum ad fara tıl rodos a morgun og sıdan er bara djamm og sol tanngad tıl vıd komum heım. Erum buın ad fara ı sıglıngu. ut ad borda. vatnsleıkjagard og fleıra og fleıra!!!! Sjaumst tegar vıd komum heım :D

» 10 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 17:55:54 / eva

JÁ!

Þá er það búið. Maður er búin að útskrifast. Já þvílíkt og annað eins........

Hvað nú? hehe....

En útskriftin var skemmtileg, ættingjar og vinir mættu í verslu og gerðum við okkur glaðan dag fékk fullt af fallegu dóti í búið, nú er bara að fara að búa....hehe... síðan skart og fleira skemmtilegt :D Mjög sátt með mig. Síðan fórum við til betu og skemmtum okkur vel og fórum að sjálfsögðu á ball. Sem var mjög skemmtilegt og valaskjálf er alveg orðið gasalega lekkert. Ég var ekkert smá sátt með þetta. Dj uppi og ball niðri algjör snilld!!!! Get ekki sagt annað loksins er lífið á Egilsstöðum að lífgast upp :D:D:D

 

En ætla að fara að skoða gjafirnar mínar og taka til...

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 12:38:09 / eva

Apótekarinn ég :)

Já maður er orðin stór stelpa..... Mín bara ein að vinna á Fásk.
Einhvern veginn finnsy mér ég vera að eldast einum of hratt þessa dagana. Aðeins eftir að fá úr einu fagi þá er maður stúdent. Og ég var að komast að því að ég er ekkert að fara í skólan og hitt alla krakkana á hverjum degi nei nei nei.... Ég er að fara að vinna :S
Já Maður fær sko ekkert að kynnast busunum betur (hver giskaði á að maður myndi sakna þess.. hehe... djókur (böðlahúmor)), síðan á maður ekki eftir að hitta alla vinu sína á hverjum degi, og hvað þá kennarana. Já allir þið verðið að vera dugleg að leika við mig bannað að gleyma mér....
´

Þegar ég hugsa út í þetta og plús það að Rabbi verður í RVKinu langar mig fátt meira en að eiga hund :S og hver við splæsa á mig eins og einum svörtum labrador.. einhver?

En auðvitað á maður frábæra vini sem muna varla gleyma manni enda er það nú ekki auðvelt ;) En þetta fullorðins vesen hræðis mig samt smá.... í 18 ár hefur mig dreymt um að vera eldri en nú segi ég stopp. 19 er fín aldur hef ekkert að gera við 20 því ég drekk ekki áfengi og þarf því ekki að fara í átvr..hehe... Svo ég verð 19 að eilífu. :D:D:D:D:D

En ætla að fara að vinna..... samt ekkert að gera... en ég meina lifi fásk :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 18:39:53 / eva

Já var það ekki....

Nú er bara eitt próf eftir af þessum 6 sem ég átti að fara í. Og það er ekkert annað en góðar frétttir!!!!! :D:D:D:D

Þá er bara að fara að vinna, útskrifast, ef allt gekk vel ;) (sem það gerði vonandi)
Og svo eru allir að tala um útskriftarball, og núna er þetta víst að fara að gerast í alvöru. Og það er ekkert annað en HAMINGJA!!!! Gleði, gleði, gleði, gleði alla daga. 

Hver man ekki eftir sveittum en samt svo ferskum Valaskjálf böllum  ójá...!!!!

DCP-140404 239.jpg

Nákvæmlega svona :D Plús nokkrar hvítar útskriftar húfur :D:D:D Hell ya!!!!!!

 

Yfir og út


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 13:13:05 / eva

Dimmesjón

Vá hvað þetta var skemmtilegt.... Og að dimmetera edrú var bara frábært.... Ekkert annað hehe... ÉG skemmti mér stór vel.. og á tímabili bara betur en flestir sem voru drukknir... eða mér fannst það... hehe.....

En kveldið byrjaði á ferð út í Unaós, þar sem ég Beta, Karen, Birta og Atli fórum saman í bíl. Ég keyrði á rjúpu :S Vesen... En ég meina Rjúpur happenss...hehe... Síðan var Soffía vakin með stæl. Hún kom gríðarlega fersk til dyra... síðan var haldið inn í Egs þar sem krakkarnir voru að byrja á dimmeteringunni í Fellabæ. Mikið fjör á fólki, Sigrún Árna og Arnar voru fersk bæði með bakkelsi okkur til mikils fagnaðar :D hehe... Síðan var bara haldið áfram millli húsa kennara sem voru misferskir en allir jafn sáttir að fá okkur í heimsókn... hehe....

Síðan var farið á vistinna og krakkarnir þar vaktir með promp og prakt... allir gríðalega sáttir og ferskir.... hehe... Síðan var setið fyir utan skólan farið í hókí pókí, grillaðar pyslur og bara haft það gott síðan loksins loksins fegngum við að kíkja inn á vistina og berja á dyrnar.... En allir voru með læst :S ekki gott....

Síðan skelltum við okkur í sund og í seilskeil að borða síðan var farið að sofa klukkan hálf 12 búin að vaka í 28 klukkutíma :S

En titlar kvöldsins/morgusins.

Detta nóttarinnar: Karl Ben
Ferskasti kennarinn: Arnar, Helgi Ómar og Sigrún Harðar.
Besta snakkeslið: Sigrún Árna
Drukkna manneskja nóttarinnar: Hólmfríður Rut og Rafn Heiðdal
Edrú manneskja nóttarinnar; Ég
Hor næturinnar: Hólmfríður Rut
Dauði kveldins: Karen Pye
Beiler kveldins: Kristrún og Hallveig
Grillari kveldsins: Vera
Diskó ninja kveldins: Villi
Sloppur kvöldsins: Þorsteinn Gústavs
Ekkert þol kveldsins: Bjartmar Þorri
"Þjófur" kveldsins: Auðna
Gítar kveldsins: Hjalta Jón

Man ekki meira

 

 

 

Bjartmar að drepast

 

Fólk að missa vitið

 

Ég og Hófí

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 13:06:19 / eva

Dimmesjón

MYNDIRNAR ERU KOMNAR :D:D:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9